Þá er komin tímasetning á hina geysivinsælu Tech Ed fyrir þróunaraðila. Ráðstefnan verður haldin dagana 10.-14. nóvember og staðsetningin er sem fyrr Barcelona.Síðustu ár hefur Microsoft Íslandi staðið fyrir hópferð á þessa ráðstefnu og vel hefur tekist til. Stefnan er að halda því striki í ár en nánari upplýsingar verða veittar þegar nær dregur. Viljum við benda fólki á að fylgjast vel með á viðburðasíðu okkar þegar nær dregur.
Hvað er Tech Ed EMEA Developers ?
Þessi ráðstefna á vegum Microsoft í Evrópu þar sem allir helstu sérfræðingar bransans hittast og ræða nýjungar í málefnum þróunaraðila. Þarna geta gestir leitað til sérfræðinganna og rætt málin, spurt spurningar svo dæmi sé tekið. Við hvetjum hvoru tveggja þá sem áður hafa farið sem og nýja að mæta í ár og upplifa einstaka stemmningu og skemmtan. Þá er ekki úr vegi að þú lærir eitthvað nýtt, kynnist nýrri tækni eða nýju fólki.
Afsláttur ef þú skráir þig snemma !
Þeir sem skrá sig til leiks fyrir 31. júlí fá veglegan afslátt af verðinu. Það er því vel þess virði að hafa hraðar hendur því vanalega verður uppselt á þessa ráðstefnu snemma.
Nánari upplýsingar
Upplýsingar um viðburði Microsoft Íslandi
Vefsíða ráðstefnunnar