Þá er loksins komið að því. Ákveðið hefur verið að endurvekja hina þrælvinsælu .NET user group fundi sem lögðust því miður af fyrir rúmu ári. En nú er búið að setja allt af stað og því ekkert til fyrstöðu en að byrja ballið. Fyrsti fundur verður haldinn fimmtudaginn 2. október 2008 í húsakynnum Microsoft Íslandi að Engjateig 7. Efni/dagskrá fundarins má finna á vef NETUGI síðunni en þess má geta að boðið verður sem fyrr uppá pizzu og kók, þannig að enginn fer saddur heim. Hafir þú áhuga á að skrá þig getur þú sent póst þess efnis á Sóley Jensdóttur en hún hefur, ásamt Guðrúnu Jörgensen, veg og vanda þessar fundar. Einnig hafa aðrir velunnarar komið að þessari endurvakningu og eiga þeir þakkir skyldar. Taki þeir til sín sem það eiga.