Allir ættu að kannast við Internet Explorer en vafrinn er sá mest notaði í heiminum í dag. Nú nýlega kom á markaðinn ný útgáfa af vafranum eða IE 8. Þessi útgáfa er mikil framför af annars góðum vafra en nú er hann öflugri, öryggari og auðveldari í notkun. Þá eru nýir fídusar í boði sem áður hafa ekki verið til staðar. Sem dæmi má nefna:

·         Accelerators – Hægri smelltu á vefsíðu og veldu Translate with Windows Live en þannig má þýða vefsíðuna sem dæmi eða velja (e. highlight) spennandi grein, smella svo á bláa hnappinn og velja „Blog with Windows Live“

·         Web slices – Með notkun þeirra getur þú auðveldlega fylgst með vefsíðum sem eru reglulega uppfærðar, þú skráir þig fyrir viðkomandi Web slice og vafrinn sér um að láta þig vita ef „sneiðin“ hefur verið uppfærð. Gott dæmi væri af uppboðsvefnum Ebay þar sem þú getur skráð þig fyrir uppfærslum á tilteknum hlut

·         Vafra – Notaðu Smart Address bar til að finna auðveldlega þær vefsíður sem þú hefur þegar notað. Þannig er leitað í sögu (e. History) vafrans, eftirllæti (e. Favorites) og straumum (e. Feeds) til að flýta fyrir leit þinni

·         Öryggi – Þessi útgáfa er sú öruggasta á markaðinum í dag. Phising sía sem og sía á alls kyns óværu (e. Malware) hefur aldrei verið betri. Þá er einnig cross site scripting filter sem gerir okkur öruggari en fyrr á netinu

Dæmi um nýja fídusa

Þá er einnig meiri stuðningur við vefþróun með tilkomu þróunartóla stikunnar (e. Developers tools) en þannig má grandskoða html vefsíðu, sniðmát (e. Style sheets), scriptur og fleira. Við mælum eindregið með að þróunaraðilar kynni sér vafrann og hans kosti, það borgar sig á endanum.  Þá bendum við á IE addon gallery-ið sem hefur að geyma margar spennandi viðbætur.