Eins og flestir vita, þá er væntanleg ný útgáfa af Windows stýrikerfinu fljótlega. Nú þegar er komin Beta útgáfa sem hefur reynst vel hjá þeim sem hafa prófað hana. Breytingarnar frá Windows Vista eru töluverðar og margar spennandi nýjungar í boði s.s. Jump Lists, öflugri taskbar (núna er hægt að slökkva á gulu blöðrunum), öflugri stuðningur við rekla (e. Drivers), enn betri leitarvél og fleira spennandi.

Þannig má með sanni segja að fyrir þróunaraðilana er margt spennandi einnig s.s. að útbúa Jump List fyrir hugbúnaðinn okkar þ.e. ef smellt er með hægri músarhnappi á icon hugbúnaðarins þíns í task barnum þá má þar finna síðustu skjöl eða aðgerðir sem notuð voru. Fleiri upplýsingar fyrir þróunaraðila varðandi þróun á Windows 7 má finna hér. Einnig má finna developers guide fyrir Windows 7 hér.