Microsoft Iceland

The coolest Microsoft team
Welcome to MSDN Blogs Sign in | Join | Help
Expression Blend 3 á markað

Þeir sem til þekkja, vita að Expression Blend er tólið sem aðallega hönnuðir nota til að búa til GUI fyrir Silverlight og WPF. Nýjasta útgáfan, Expression Blend 3, er nýkomin á markað og er öflugri en nokkru sinni fyrr.

Ein stærsta viðbótin við Blend 3 er svokallað Sketch Flow sem er hugsað sem prototype-ing tól fyrir þróunaraðila. Vanalega er hugbúnaður hannaður í samvinnu við viðskiptavini þar sem gerðar eru svokallaðar low fidelity prototype af væntanlegum hugbúnaði. Þetta eru handteiknaðar skissur sem sýna fram á flæði hugbúnaðarins fyrir viðskiptavininn. Í Sketch Flow getur hönnuður hugbúnaðarins gengið skrefinu lengra, teiknað skissurnar, skannað þær inn og unnið með skissurnar í Sketch Flow. Þess má geta að nú er kominn stuðningur við .PSD skrár sem ekki var áður. En þannig má setja flæði hugbúnaðarins upp með t.d. virkum hnöppum o.s.frv. og þannig náð enn betur að sýna fram á flæði hugbúnaðarins.

Reyndar eru margar nýjungar í Blend 3 og má finna nánari upplýsingar um þær hér.

Þróun fyrir Windows 7

Eins og flestir vita, þá er væntanleg ný útgáfa af Windows stýrikerfinu fljótlega. Nú þegar er komin Beta útgáfa sem hefur reynst vel hjá þeim sem hafa prófað hana. Breytingarnar frá Windows Vista eru töluverðar og margar spennandi nýjungar í boði s.s. Jump Lists, öflugri taskbar (núna er hægt að slökkva á gulu blöðrunum), öflugri stuðningur við rekla (e. Drivers), enn betri leitarvél og fleira spennandi.

Þannig má með sanni segja að fyrir þróunaraðilana er margt spennandi einnig s.s. að útbúa Jump List fyrir hugbúnaðinn okkar þ.e. ef smellt er með hægri músarhnappi á icon hugbúnaðarins þíns í task barnum þá má þar finna síðustu skjöl eða aðgerðir sem notuð voru. Fleiri upplýsingar fyrir þróunaraðila varðandi þróun á Windows 7 má finna hér. Einnig má finna developers guide fyrir Windows 7 hér.

 

Internet Explorer 8

Allir ættu að kannast við Internet Explorer en vafrinn er sá mest notaði í heiminum í dag. Nú nýlega kom á markaðinn ný útgáfa af vafranum eða IE 8. Þessi útgáfa er mikil framför af annars góðum vafra en nú er hann öflugri, öryggari og auðveldari í notkun. Þá eru nýir fídusar í boði sem áður hafa ekki verið til staðar. Sem dæmi má nefna:

·         Accelerators – Hægri smelltu á vefsíðu og veldu Translate with Windows Live en þannig má þýða vefsíðuna sem dæmi eða velja (e. highlight) spennandi grein, smella svo á bláa hnappinn og velja „Blog with Windows Live“

·         Web slices – Með notkun þeirra getur þú auðveldlega fylgst með vefsíðum sem eru reglulega uppfærðar, þú skráir þig fyrir viðkomandi Web slice og vafrinn sér um að láta þig vita ef „sneiðin“ hefur verið uppfærð. Gott dæmi væri af uppboðsvefnum Ebay þar sem þú getur skráð þig fyrir uppfærslum á tilteknum hlut

·         Vafra – Notaðu Smart Address bar til að finna auðveldlega þær vefsíður sem þú hefur þegar notað. Þannig er leitað í sögu (e. History) vafrans, eftirllæti (e. Favorites) og straumum (e. Feeds) til að flýta fyrir leit þinni

·         Öryggi – Þessi útgáfa er sú öruggasta á markaðinum í dag. Phising sía sem og sía á alls kyns óværu (e. Malware) hefur aldrei verið betri. Þá er einnig cross site scripting filter sem gerir okkur öruggari en fyrr á netinu

Dæmi um nýja fídusa

Þá er einnig meiri stuðningur við vefþróun með tilkomu þróunartóla stikunnar (e. Developers tools) en þannig má grandskoða html vefsíðu, sniðmát (e. Style sheets), scriptur og fleira. Við mælum eindregið með að þróunaraðilar kynni sér vafrann og hans kosti, það borgar sig á endanum.  Þá bendum við á IE addon gallery-ið sem hefur að geyma margar spennandi viðbætur.

Microsoft Silverlight 3

Flestir ættu orðið að kannast við Silverlight frá Microsoft en þetta platform hefur á aðeins fáeinum mánuðum þróast hratt og lítur betur og betur út með hverjum deginum. Í mars síðast liðnum var kynnt þriðja útgáfan, á MIX ráðstefnunni, sem er árleg ráðstefna fyrir hönnuði og þróunaraðila.

Meðal nýjunga eru:

Í miðlun (e. Media)

·         Smooth streaming stuðningur (viðbót við IIS7)

·         Enn meiri HD gæði með tilkomu H.264

·         GPU acceleration fyrir videó útreikninga (styður HD í full screen)

·         Raw AV pipline (þú getur nú gert eigin codec-a í managed kóða)

·         Play Ready DRM fyrir VC-1 media

Grafík

·         Aukinn þrívíddar stuðningur (með tilkomu Perspective 3D transform)

·         Bitmap caching (aukinn hraði)

·         Bitmap API

·         Dynamic styling and Theming

·         Endurbætt texta rendering (verður enn öflugri í lokaútgáfunni)

Hugbúnaðarþróun

·         Yfir 60 control í boði ásamt kóða

·         Search SEO stuðningur

·         Data form controls

·         DLL caching (gefur meiri hraða)

·         Binary XML (stuðningur við meiri compression)

·         Betri stuðningur við Data Binding

 

Hér er aðeins verið að fleyta rjómanum ofan af og má nefna fáeina aðra spennandi hluti eins að keyra Silverlight lausnir á skjáborðinu (e. Desktop) í annað hvort PC eða Mac þ.e. án vafra. Einnig er góður stuðningur við Windows 7, sem er væntanleg útgáfa af stýrikerfinu, og meðal annars styður snerti (e. Touch) tæknina.

Nánari upplýsingar um þessa nýju útgáfu má finna á vefnum silverlight.net en þú getur hafið þróun nú þegar. Einnig viljum við benda á nýjustu útgáfuna af Expression Blend (fyrir hönnuði) en þessi útgáfa er sérlega hönnuð með Silverlight 3 í huga og því margir nýir spennani fídusar í boði.
Styttist í MIX 2009

MIX ráðstefnan er sú stærsta sem Microsoft heldur árlega fyrir vefþróunaraðila og vefhönnuði. Hér koma saman allir helstu sérfræðingarnir á þessu sviði og gefa þér tækifæri til að hafa áhrif á framtíð vefsins. Það er enginn annar er en Scott Guthrie, Corporate Vice President hjá Microsoft, sem fer með opnunarkynninguna en hann er sá sem allir .NET þróunaraðilar ættu að þekkja vel. Þess má geta að þessi ráðstefna fer fram í Las Vegas líkt og undan farin ár. Áhugasömum er bent á að skrá sig tímalega þar sem uppselt er vanalega snemma á þessa ráðstefnu.

 Hér má finna nánari upplýsingar um ráðstefnuna !

Það besta frá TechEd
Fyrir þá sem ekki komust á TechEd í fyrra, þá hefur Microsoft Íslandi ákveðið að halda "Það besta frá TechEd 2008" þar sem margir spennandi fyrirlestrar verða í boði. Ráðstefnan fer fram dagana 19. og 20. janúar og það á Grand Hótel Reykjavík. Sem dæmi um spennandi fyrirlestra má nefna "Windows Azure introduction" þar sem fjallað er um cloud computing, "Building Rich Internet Apps with Silverlight 2" og ADO.NET Entity Framework. Þetta er aðeins hluti af fyrirlestrunum en endilega kíkið á dagskrána og skráið ykkur sem fyrst. Þess má geta að ÓKEYPIS er á ráðstefnuna !
Microsoft kynnir Windows Azure

Microsoft svipti nú nýlega hulunni af Windows Azure, netstýrikerfi sem verður grunnurinn að aukinni áherslu fyrirtækisins á veflausnir. Slíkar lausnir byggja á því sem kallað er „cloud computing“, sem þýða má sem „tölvuský“. Tölvuský eru í raun nettengd risagagnaver sem fyrirtæki geta nýtt til að keyra hugbúnaðarlausnir sínar í stað þess að byggja upp eigin tölvuver.

 

Tölvuský geta m.a. tryggt fyrirtækjum stöðugan aðgang að nýjasta og öflugasta tölvubúnaði sem í boði er, sparað kostnað við rekstur eigin tölvukerfa og gert fyrirtækjum kleift að ráða betur við álagssveiflur. Ýmis vefþjónusta fyrir einstaklinga byggir nú þegar á tölvuskýjum en fyrirtæki eru í auknum mæli farin að líta á tölvuský sem raunhæfan valkost við hefðbundið fyrirkomulag í rekstri tölvukerfa.

 

Ray Ozzie, þróunarstjóri Microsoft, kynnti Windows Azure á Professional Developers ráðstefnu Microsoft (PDC). Þar lagði hann áherslu á það hvernig forritarar og vefhönnuðir geta byggt lausnir sínar ofan á Azure og þannig þróað næstu kynslóð hugbúnaðar sem nýtir sér kosti tölvuskýja.

 

„Azure mun veita bæði hugbúnaðarhönnuðum, hvort sem þeir sérhæfa sig í vefhugbúnaði eða viðskiptahugbúnaði, áður óþekkt tækifæri. Azure er hannað til að breyta því hvernig fyrirtæki starfa og hvernig neytendur upplifa Vefinn. Með Azure geta viðskiptavinir okkar valið milli þess að keyra hugbúnað sinn í tölvuskýi á Vefnum, á eigin tölvukerfum innanhúss eða sameinað kosti beggja á þann hátt sem best hentar hverju fyrirtæki fyrir sig,“ sagði Ozzie við kynningu Azure.

 

„Tilkoma tölvuskýja opnar og auðveldar aðgang frumkvöðla að nýjum mörkuðum sem skapar tækifæri fyrir íslenskt hugvit. Það má því segja að þessar nýjungar komi á hárréttum tíma fyrir íslensk sprotafyrirtæki,“ segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi.

 

Kjarni Azure er útgáfa Windows stýrikerfisins sem er sérhönnuð fyrir tölvuský auk þess sem Azure er samhæft ýmsum öðrum Microsoft lausnum á borð við SQL Services, .Net Services og Live Services. Gestir PDC fengu prufuaðgang að Azure Services, þróunartólum sem hönnuðir geta notað til að smíða hugbúnað fyrir Windows Azure.

 

Nánari upplýsingar um Azure má finna á slóðinni www.azure.com

Allt um Microsoft vefþróun

Fyrir þá sem hafa áhuga eða starfa af vefþróun í Microsoft umhverfunum ættu að kynna sér nýjustu vefsíðuna um vefmál. Þarna má finna allt er varðar vefþróun í MIcrosoft umhverfunum s.s. viðburði, námskeið, þróunartól, samfélagsumræður o.s.frv.

 Kíktu á www.microsoft.com/web !

Silverlight 2 komið í loftið
Loksins segja einhverjir, en Silverlight 2 er komið í loftið. Hafir þú áhuga á að kynna þér allt sem þessari útgáfu fylgir getur þú fundið það hér.
Microsoft kynnir Visual Studio 2010 og .NET framework 4.0
Nú nýlega kynnti Microsoft Corporation væntanlegar útgáfur af þróunartólunum sínum þ.e. Visual Studio 2010, .NET framework 4.0 og Visual Studio Team System 2010 (VSTS betur þekkt sem Rosario). Nýi hugbúnaðurinn á að hafa marga spennandi hluti sem einfalda enn frekar öfluga hugbúnaðargerð. Fréttatilkynningu Microsoft má lesa nánar hér. Einnig má finna nánari upplýsingar um hugbúnaðinn og nýju hlutina hér.
Silverlight 2 RC0 komið!
Já það er komið að því sem margir hafa beðið eftir en Silverlight 2 er komið í release candiate 0 og því styttist í RTM útgáfuna. Allar upplýsingar um útgáfuna má finna hér. En þá mælum við einnig með að þið kíkið á vefinn hjá meistara Scott Guthrie en hann er án efa með einhverjar upplýsingar um málið.
.NET user group endurvakið

Þá er loksins komið að því. Ákveðið hefur verið að endurvekja hina þrælvinsælu .NET user group fundi sem lögðust því miður af fyrir rúmu ári. En nú er búið að setja allt af stað og því ekkert til fyrstöðu en að byrja ballið. Fyrsti fundur verður haldinn fimmtudaginn 2. október 2008 í húsakynnum Microsoft Íslandi að Engjateig 7. Efni/dagskrá fundarins má finna á vef NETUGI síðunni en þess má geta að boðið verður sem fyrr uppá pizzu og kók, þannig að enginn fer saddur heim. Hafir þú áhuga á að skrá þig getur þú sent póst þess efnis á Sóley Jensdóttur en hún hefur, ásamt Guðrúnu Jörgensen, veg og vanda þessar fundar. Einnig hafa aðrir velunnarar komið að þessari endurvakningu og eiga þeir þakkir skyldar. Taki þeir til sín sem það eiga.

 

Finna villur......debugging

Ef þú hefur litla sem enga reynslu af villuleit (e. debugging) þá er þetta færslan sem kemur þér á bragðið. Hér má finna góða samantekt á öllum helstu skrefunum sem skipta máli þegar kemur að því að debugga kóða.

Stillingar til að auka afköst Windows Server 2008 (M.a. Hyper v)

Í þessu skjali má finna upplýsingar um alla helstu stillingar parametrana sem og mögulegar útkomur af notkun þeirra á Windows Server 2008. Öllum stillingunum er lýst vel til þess að gera þér kleyft að velja réttu stillingarnar á netþjóninum hvort sem það er tengt afköstum, afkastagetu eða öðru.

 Náðu í skjalið hér.

Microsoft Performance guide

Fyrirspurnir með LINQ

Eitt af því áhugaverðara sem Microsoft hefur gert, á sviði gagnavinnslu, undanfarin ár er fyrirspurnarmálið LINQ (e. language integrated query). LINQ er hluti af hinu nýja .NET framework 3.5. Einn helsti kosturinn við LINQ er sá að gögnin geta verið í raun hvað sem er þ.e. gagnagrunnur, xml skrá eða object. Forritarar geta ráðið því hvort þeir nota C# eða Visual Basic en syntaxinn þykir líkjast T-SQL að einhverju leiti. Það ætti því ekki að vera erfitt fyrir vana forritara að tileinka sér notkun LINQ.

int[] numbers = { 0, 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9 };
var evens = from p in numbers
            where p % 2 == 0
            select p;

foreach (var e in evens)
    Console.WriteLine(e); 

Í þessum kóðabút er búið til fylki með tölum frá 0 - 9, valdar jöfnu tölurnar og þær skrifaðar út á skjáinn. Hér má því sjá einfalt dæmi sem sannar það að LINQ syntaxinn er nokkuð kunnuglegur.

Það er ljóst að LINQ er komið til að vera, þar sem möguleikarnir með notkun þess eru margir og spennandi. Fyrirspurnir á hinar ýmsu tegundir gagna, notkun lambada í útreikningum gefa meiri hraða í útreikninga og margt fleira spennandi.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér LINQ betur er bent á bókina Professional LINQ eftir Scott Klein en hún fæst í bóksölu stúdenta. 

More Posts Next page »

Page view tracker