Það besta frá TechEd
Fyrir þá sem ekki komust á TechEd í fyrra, þá hefur Microsoft Íslandi ákveðið að halda "Það besta frá TechEd 2008" þar sem margir spennandi fyrirlestrar verða í boði. Ráðstefnan fer fram dagana 19. og 20. janúar og það á Grand Hótel Reykjavík. Sem dæmi um spennandi fyrirlestra má nefna "Windows Azure introduction" þar sem fjallað er um cloud computing, "Building Rich Internet Apps with Silverlight 2" og ADO.NET Entity Framework. Þetta er aðeins hluti af fyrirlestrunum en endilega kíkið á
dagskrána og skráið ykkur sem fyrst. Þess má geta að ÓKEYPIS er á ráðstefnuna !